Vörustjórnun DHL
Við skipuleggjum og framfylgjum sérhönnuðum flutningsleiðum og iðnaðarlausnum fyrir leiðandi stórfyrirtæki í meira en 50 löndum.

“Með samstarfsaðilum okkar færum við leiðandi stórfyrirtækjum alþjóðlega yfirsýn á markaði og sérhæfðar lausnir. Sérfræðiþekking okkar á flutningakeðjum og mörkuðum tryggja að lausnir, vöruhýsing og dreifing gera fyrirtæki viðskiptavina okkar skilvirkari og samkeppnishæfari í reksti sínum. Við látum hag viðskiptavina okkar alltaf ganga fyrir, allt frá þarfagreiningu til stöðugrar uppbyggingar til að skila þeim betri árangri á degi hverjum.
Bruce Edwards, CEO DHL SUPPLY CHAIN DIVISION
Bruce Edwards, CEO DHL SUPPLY CHAIN DIVISION
Sem stærsta einstaka vörustjórnunarfyrirtæki heims miðar vörustjórnun DHL að því að:
- skapa sjálfbæran, samkeppnishæfan grundvöll fyrir viðskiptavini okkar með því að koma vörum viðskiptavina okkar til skila á hraðari og hagkvæmari hátt.
Hversu kröfuharðir sem viðskiptavinir okkar eru geta þeir treyst þvi að reynsla okkar og stærð gerir okkur kleift að ná fram hagkvæmni og gæðum á öllum sviðum vörustjórnunar. - bjóða viðskiptavinum upp á margs konar sérsniðnar iðnaðarlausnir í gegnum vörustjórnunarferlið
Viðskiptavinir DHL geta treyst því að allt frá skipulagningu, útboði, framleiðslu, vörugeymslu og verðútreikningum til sölu og afhendingar, þá höfum við öruggar lausnir fyrir hvers kyns iðnað og umhverfi, sama hversu miklar kröfurnar eru. - nota þekkingu okkar á iðnaði og vörustjórnun til að umbreyta flóknum kröfum viðskiptavina okkar í sveigjanlegar lausnir
Með skilningi á vandamálum og sveigjanleika á síbreytilegum mörkuðum, geta viðskiptavinir okkar treyst gæðum og sérþekkingu alþjóðlegra og staðbundinna vörustjórnunarteyma DHL. - með þjónustu í hæsta gæðaflokki
Viðskiptavinir okkar geta reitt sig á lausnir vörustjórnunar DHL sem byggjast á stöðugri endurnýjun verkferla og gæðaeftirliti, verkefnastjórnun, eftirliti með umhverfismálum og stöðugri viðleitni til að bæta árangur okkar.
DHL Supply Chain Worldwide (2010)
Starfsfólk: | 120.000 |
| Starfsemi í löndum: | Meira en 60 |
| Dreifingarmiðstöðvar, vöruhús, skrifstofur: | 2.400 |
| Geymslusvæði í fermetrum: | Um það bil 23.000.000 |
