Saga DHL
DHL – Saga fyrirtækisins frá hraðflutningum til fraktsendinga. Uppbygging og merkisatburðir.
DHL er hluti af stærstu flutningasamsteypu heims, Deutsche Post DHL
Þær heildarlausnir sem DHL býður upp á ná allt frá landflutningum til flug- og sjófraktar milli landa. Auk þess bjóðum við upp á ýmsa þjónustuliði sem auðvelda flutningaferlið fyrir fyrirtæki, svo sem tollaumsjón og fleira. Slíkar heildarlausnir einfalda flutningaferlið fyrir viðskiptavininn þar sem hann getur nú nálgast alla þá flutningsþjónustu sem hann þarf á að halda hjá einum og sama aðilanum. Einnig getur sendandinn ráðið hraða sendingarinnar hvort sem um er að ræða innflutning eða útflutning.
DHL – Fjórar einingar – eitt merki – allar lausnir á sama stað
DHL samanstendur af fjórum samverkandi einingum. Þetta þýðir að við getum boðið upp á meiri sveigjanleika, betri þjónustu og hagkvæmari leiðir fyrir viðskiptavini okkar.
Frá skjalasendingum til yfirburða á heimsmarkaði
DHL var stofnað í San Francisco fyrir meira en 40 árum af 3 upprennandi athafnamönnum – Adrian Dalsey, Larry Hillblom og Robert Lynn – og hefur síðan þanist út á ævintýralegum hraða. Í dag er fyrirtækið stoltur merkisberi í alþjóða hraðsendingum og vöruþjónustu á heimsmarkaði.
DHL stækkaði mjög hratt og færði í upphafi út kvíarnar til Asíu og Kyrrahafssvæðisins. Í kjölfarið hélt fyrirtækið síðan innreið sína til Afríku og Evrópu. Á aðeins 4 árum var fyrirtækið farið að þjónusta um 3000 viðskiptavini og starfsmannafjöldi kominn upp í 300.
Árið 1977 var þjónustuframboð aukið og farið að senda litla pakka til viðbótar við skjalasendingar. Árið 1982 varð síðan sprenging í vexti fyrirtækisins, sem opnaði í 30 nýjum löndum það árið, þar með talið á Íslandi. Ári síðar varð DHL síðan fyrsta hraðflutningafyrirtækið til að opna skrifstofur í Austur-Evrópu. Fyrirtækið var einnig fyrst til að hefja rekstur í Kína árið 1986.
Frumkvöðlaandinn er enn ríkur innan DHL og þrátt fyrir að grunnþjónustan felist í flutningi skjala og pakka býður fyrirtækið einnig upp á ýmsar netlausnir sem auðvelda viðskiptavinum DHL að stunda inn- og útflutning. Þar að auki býður fyrirtækið upp á sérhæfðar lausnir fyrir tilteknar atvinnu- og iðngreinar á borð við bíla- og líftækniiðnað.

Skref að árangri
1969
- Adrian Dalsey, Larry Hillblom og Robert Lynn stofna DHL í San Francisco.