Skip to content
Skip to service links: contact, tools, help, the group
Skip to search
Skip to main navigation
Skip to sub navigation
Skip to Footer with links to masthead, print, email a friend and disclaimer
 

DHL EXPRESS

DHL Express er leiðandi í alþjóðahraðflutningum.
“Hraðflutningar eru einn mikilvægasti þátturinn í alþjóðlegum viðskiptum og við erum í frábærri aðstöðu til að færa okkur það í nyt, með því að mæta þörfum viðskiptavina okkar innanlands og utan, alls staðar í heiminum.
Ég er afar stoltur af þeim 100.000 starfsmönnum okkar, sem leggja sig alla fram um að standa við skuldbindingar okkar.
Við hjá DHL höfum skapað umhverfi þar sem fólk nýtur þess að vinna saman, umhverfi sem styrkir persónuleg samskipti við viðskiptavini okkar og almennan árangur fyrirtækisins.”


Ken Allen, CEO EXPRESS
Flutningsnet sem nær til 220 landa og rúmlega 120.000 áfangastaða með akstur og hraðsendingaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Same Day, Time Definite og Day Definite eru þjónustuleiðir sem eru sniðnar að þínum þörfum.

DHL Express Worldwide (2011)

Höfuðstöðvar:Bonn, Þýskaland
Tekjur*:Um það bil. 11.1 milljarðar evra (2009: um 9,9 milljarðar evra)
Sendingafjöldi**:Um 439 milljónir (TDI: 128 milljónir)
Dreifikerfi:Dreifing í meira en 220 löndum og landssvæðum // og á meira en 500 flugvöllum um allan heim
Starfsmenn***:Meira en 100.000
Viðskiptavinir****:Meira en 2,5 milljónir
Flugfloti:Um 250 sérbúnar flugvélar
Mikilvægustu samstarfsflugfélög á heimsvísuAerologic, Kalitta Air, Polar Air Cargo Worldwide
Farartæki*****:Um það bil 32.000
Aðstaða og búnaður******:Um það bil 4.000
Þjónustumiðstöðvar:
32.300
3 alþjóðlegir skiptivellir:Hong Kong, Leipzig, Cincinnati
15 svæðisbundnir aðalskiptivellir:Amsterdam, Bergamo, Brüssel, Kaupmannahöfn, East Midlands (Bretlandi), Frankfurt, London, París, Vitoria (Spáni) // Bangkok, Singapúr // Bahrain, Dubai, Lagos // Panama
Alþjóðlegar UT-miðstöðvar:UT-miðstöðvarnar í Cyberjaya (Malasíu) og Prag (Tékklandi) veita þjónustu fyrir allt hnattræna þjónustunetið
Hnattræn gæðaeftirlitskerfi:Hnattræn gæðaeftirlitskerfi eru í Bonn (Þýskalandi), Leipzig (Þýskalandi), Cincinnati (USA) og Singapúr (Singapúr).
TAPA vottanir*******:154 TAPA vottanir

* Eins og gefið er upp afkomuskýrslu DPDHL 2010
** Upplýsingarnar eru uppfærðar fyrir allt árið 2010
*** Heilstöðugildi að meðtöldum yfirvinnustundum og lausastarfsfólki.
**** Skilgreining viðskiptavina: Virkir viðskiptavinir allra söludeilda
***** Eigin vöru- og flutningabílar ásamt þeim sem eru í fastri leigu
****** Skilgreining á aðstöðu og búnaði: Safnvellir, útibú, þjónustumiðstöðvar, skiptivellir
******* TAPA: Transported Asset Protection Association
                                                                                                                                                                                                                                            júlí 2011

Leiðandi alþjóðlegur flugfloti

Dreifikerfið

DHL flýgur til rúmlega 500 flugvalla í Evrópu, Asíu, Suður-Ameríku, Miðausturlöndum og Afríku svo og til u.þ.b. 50 í Bandaríkjunum. Svo mikil útbreiðsla á sér engan líka í hraðflutningageiranum. Það er grundvöllurinn í alþjóðaflutningum okkar.

Við höldum úti háþróuðu kerfi flugáætlana sem okkar eigin flugfélög reka, sem og með leiguflugi og öðrum flugfélögum sem við störfum með. Við aukum getu okkar og fjármagn með því að efla flugfraktina og bjóða systurfélögum okkar og öðrum flutningsaðilum aðgang að dreifikerfi okkar.

50 stærstu flugvellir DHL

Abidjan, Amsterdam, Bahrain, Bangkok, Beirut, Bergamo, Bridgetown, Brussels, Buenos Aires, Cairo, Caracas, Casablanca, Copenhagen, Delhi, Dubai, East Midlands, Frankfurt, Guatemala City, Hong Kong, Istanbul, Johannesburg, Kuweit, Lagos, Leipzig, Libreville, London, Los Angeles, Madrid, Mexico City, Miami, Moscow, Mumbai, Nairobi, New York, Panama, Paris, San Francisco, San Jose, Sao Paolo, Seoul, Shanghai, Singapore, Sydney, Taipei, Tel Aviv, Tokyo, Toronto, Vancouver, Vitoria.

Flugfloti og flutningsmiðstöðvar

DHL hefur komið á fót viðmiðunarreglum til að tryggja að aðeins öruggustu og nýjustu tegundir flugvéla eru notaðar á hverjum tíma, með kröfu á að þær séu umhverfisvænar. Á sama hátt er öll aðstaða á flugvöllum búin háþróuðustu tækni og stenst hæstu kröfur um umhverfisvernd og öryggi.

Dreifingarmiðstöð okkar í Leipzig sú er fullkomnasta í flutningageiranum, gædd öllum nýjasta búnaði og ræður við gegnumflæði allt að 2.000 tonna á sólarhing. Hún er útbúin kerfum til að nýta sólarorku og endurvinna vatn.