Viðkvæmar vörur
DHL er leiðandi í flutningi á viðkvæmum vörum, svo sem sjávarafurðum og ávöxtum. Við notum sérstaka eftirlitstækni til að tryggja að sendingar sem eru háðar tíma eru afhentar hratt og örugglega á öllum helstu flutningsleiðum.
Lykilþættir:
- Skammur flutningstími, einnig ef snúa þarf vörunni við.
- Margir möguleikar í boði til að mæta þörfum hvers og eins.
- Sendingar eru fullrekjanlegar allan flutningstímann.
- Fullkomin tækni í rekjanleika tryggir betri upplýsingar.
- Forgangsþjónusta við meðferð og geymslu tryggir að séð er um vöruna þína öllum stundum.
