Forgangsflugfrakt
Ef þú þarft að láta afhenda stærri sendingar á ákveðnum tímum er DHL AIRFREIGHT PLUS kosturinn fyrir þig. Hér er sameinaður einfaldleiki hraðsendinga og hagkvæmni flugfraktar. Í boði eru tveir möguleikar: DHL AIRFREIGHT PLUS EUROPE og INTERCONTINENTAL.
Með DHL AIRFREIGHT PLUS, ákveður þú flutningskjörin og greiðir eitt verð fyrir sendinguna, án þess að nokkur falinn kostnaður bætist við. Við tollafgreiðum einnig sendinguna fyrir þig, sem flýtir enn frekar fyrir afhendingu.
Lykilþættir:
- Öflug og örugg þjónusta innan Evrópu
- Afhendingar á fyrirfram ákveðnum tíma
- Sótt og sent heim að dyrum, til aukinna þæginda
- Eitt verð, allt innifalið, gagnsærri verð fyrir þig
- Engin stærðar- eða þyngdartakmörk*
*að því gefnu að tæki okkar og tól ráði við sendingarnar
