Nákvæmar leiðbeiningar um útfyllingu farmbréfa
Farmbréf verður að fylgja með öllum sendingum DHL – það tryggir örugga afhendingu á réttum tíma. Fáðu leiðbeiningar um hvernig fylla á út farmbréf hér.
Hvers vegna þarf ég farmbréf?
- Það segir okkur hvert sendingin á að fara, hvaða þjónustuleið þú velur og hvernig þú kýst að borga undir hana.
- Þar færðu upplýsingar um þá skilmála sem fylgja þjónustu okkar. Vinsamlegast kynntu þér þær upplýsingar vel þar sem þar kemur fram hver ábyrgð sendanda er.
- Þar færðu gefið upp númer sem þú getur meðal annars notað til að rekja feril sendingarinnar á netinu.
- Það upplýsir tollayfirvöld um innihald sendingarinnar, sem tryggir þér hraðari afgreiðslu svo að sendingin kemst fyrr á áfangastað.
Farmbréfið skref fyrir skref
Athugið að þessi útgáfa farmbréfsins styðst við JavaScript-forritið, sem tengt er flestum netvöfrum. Hafirðu aftengt JavaScript virkar hún ekki rétt.
