Bréfsefni fyrirtækis
Notaðu bréfsefni með merki þíns fyrirtækis
Nafn og heimilisfang sendanda
Skráðu fullt nafn og heimilisfang, einnig póstnúmer, síma- eða faxnúmer og VSK-númer
Heimilisfang móttakanda
Settu inn allar upplýsingar um móttakanda. Vinsamlegast gakktu úr skugga um að allt komi fram; heimilisfang, síma- eða faxnúmer viðtakanda
Farmbréfsnúmer
Skráðu númer sendingarinnar
Upplýsingar um sendingu
Skráðu fjölda stykkja, heildarþyngd, og nettóþyngd sendingar
Flutningsaðili
Taktu fram að varan er flutt með DHL
Nákvæm vörulýsing
Skráðu nákvæma lýsingu á innihaldi sendingar
Tollflokkar
Skráðu tollflokk fyrir hvern hlut. Athugaðu að fyrstu sex tölurnar eru samkvæmt hnattrænum staðli, en þær sem á eftir fylgja tilheyra hverju landi fyrir sig
Upprunaland
Skráðu framleiðsluland hvers hlutar í sendingunni
Magn
Taktu fram hversu mörg stykki eru af hverjum hlut í sendingunni
Verðmæti og gjaldmiðill vöruliða
Skráðu verðmæti vöruliða og gjaldmiðil sem notaður er
Heildarverðmæti og gjaldmiðill
Skráðu heildarverðmæti og gjaldmiðil sem notaður er
Ástæða útflutnings
Taktu fram ástæðu fyrir flutningi vörunnar
Gerð reiknings
Taktu fram hvort um er að ræða sölu- eða Proformareikning
Að lokum
Ljúktu skjalinu með því að skrá nafn þitt, heimilisfang, dagsetningu og undirskrift