Það er ekki létt verk að tollafgreiða milljónir sendinga á degi hverjum. DHL Express gerir það þó daglega með því að taka að sér hlutverk tollmiðlara fyrir viðskiptavini sína.
Með tollafgreiðslu á öllum okkar áfangastöðum erum við einn stærsti tollmiðlari heims. Það hlutverk verður til þess að við þurfum að tryggja að tollskjöl þín séu alltaf nákvæmlega og rétt útfyllt.
Að lokinni vandlegri skoðun okkar, eru tollskjöl afhent viðkomandi tollayfirvöldum. Þau starfa með okkur að hraðri afgreiðslu og afhendingu sendinga þinna.