Orðtakasafn tollayfirvalda
Tollgæslan notar sérstakt tungumál og hugtök sem geta virst frekar flókin. Orðasafn DHL sýnir öll helstu hugtökin sem verða á vegi þínum þegar þú sendir tollskyldan varning á milli landa.
Skammstöfun notuð í alþjóðlegum viðskiptum þar sem flutningsverð er innifalið í söluverði á reikningi.
Seljandi greiðir allan flutningskostnað sem hlýst af sendingunni, frá upprunastað að flugvelli eða höfn hjá móttakanda.
CIF merkir að allar upphæðir vegna flutninga eru reiknaðar út frá þessum gjaldalið á reikningi, burtséð frá tegund viðskipta.

Svæði innan landamæra (hafna, flugvalla, vörugeymsla eða annarra tiltekinna svæða) sem álitin eru utan lögsögu tollgæslu.
Innflytjendur geta þar af leiðandi flutt erlendar vörur inn á slík svæði án þess að greiða skatta eða tolla af þeim. Þetta er alltaf á meðan á endanlegri vinnslu stendur, eða ef um milliflutning eða endurútflutning er að ræða.
Frísvæði voru fjölmörg og ábatasöm þegar aðflutningsgjöld voru hærri á árum áður. Enn eru til frísvæði í höfuðborgum, flutningamiðstöðvum og stærri höfnum en þeim hefur fækkað og umsvif þeirra minnkað eftir því sem aðflutningsgjöld hafa lækkað síðustu árin.
Frísvæði eru einnig nefnd fríhafnir, tollvörugeymslur, fríverslunarsvæði og erlend verslunarsvæði.