DHL Express – Alþjóðasérfræðingar í hraðflutningum
Allt frá því við höfðum frumkvæði að sköpun alþjóðlega hraðflutningaiðnaðarins árið 1969, hefur rekstur okkar fyrst og fremst miðað að því að auka hag viðskiptavina okkar. Sami eldmóðurinn liggur að baki allri okkar vinnu í dag – við gerum hvað sem þarf til að mæta og fara fram úr þörfum og kröfum viðskiptavina okkar í inn- og útflutningi. Með slíkri skuldbindingu við viðskiptavini okkar höfum við opnað nýja markaðsmöguleika í öllum heimshornum. Í dag erum við alþjóðlegasta fyrirtæki í heiminum!
Ástríða og staðfesta, að hjálpa fyrirtækjum af öllum stærðum að vaxa á alþjóðlegum mörkuðum, er grunnurinn að starfsemi okkar, drifkrafturinn í störfum okkar í dag og það sem mun tryggja árangur DHL Express og viðskiptavina okkar í framtíðinni. Við köllum þetta gula leiftrið.
Skoða sjónvarpsauglýsinguna Alþjóðasérfræðingarnir
Ná í kynningarlagið
Við vildum nota áhrifamátt tónlistarinnar til að endurspegla drifkraftinn og ástríðuna á bak við ímynd okkar. Sjónvarpsauglýsingin byggir á endursköpun hins sígilda “Ain’t No Mountain High Enough” sem hefur verið einkennislag DHL frá því lagið var notað í auglýsingaherferð okkar árið 1991.
Fullt hvatningar og góðra strauma dregur lagið fullkomlega saman ástríðuna og “ekkert er ómögulegt” viðhorfið sem DHL Express stendur fyrir. Auglýsingin er færð í nútímahorf undir stjórn verðlaunaframleiðandans Paul Epworth og sýnir hvernig ljósleiftrið tengir saman ástríðu og drifkraft DHL á ferð sinni umhverfis heiminn.